Pétur R. Jónsson
Húsasmíðameistari, smiður og iðnfræðingur
Löggiltur 26.05.2008
Listi yfir iðnmeistara | Mannvirkjastofnun
Vantar þig vandaðan smið í vinnu? Miðbæjarsmiðurinn vinnur fyrir fyrirtæki, húsfélög og einstaklinga að allri almennri smíðavinnu með áherslu á endurgerð gamalla húsa.
Pétur smiður lærði smíðar í Fjölbrautarskóla Suðurnesja, var á samning hjá Húsagerðinni og vann hjá þeim lengst framan af. Flutti til Noregs og starfaði við trésmíðar þar í 4 ár. Eftir heimkomu hóf hann störf hjá Húsagerðinni og síðar hjá Keflavíkurverktökum þar sem hann starfaði m.a. sem verkstjóri.
Pétur hefur starfað meira og minna sjálfstætt síðan 2015.
Síðan Pétur byrjaði sem sjálfstæður verktaki hefur hann starfað við fjölda krefjandi verkefna.
Má þar nefna bílaleiguna Geysi – Arnarvöllur sem byggingastjóri, Skugga Lindargötu 28-32 við þak og klæðningu og innréttingar fyrir Ásbrú íbúðir. Pétur vann við að innrétta hið glæsilega Retreat hótel Bláa Lónsins og einnig við nýjan matsal. Einnig má nefna verkefni í Álftanesskóla, hjúkrunarheimili Hrafnistu við Slettuveg.
Miðbæjarsmiðurinn vinnur fyrir fyrirtæki, húsfélög og einstaklinga að allri almennri smíðavinnu. Ef ykkur vantar vandaðan fagmann í smíðaverkefni þá endilega hafið samband á netfangið PRJ@101smidur.is eða fyllið út formið hér að neðan.
Með kveðju,
101 smiðurinn
Fagmennska í fyrirrúmi





